Íslenska
fréttir


Ráðstefna um kynjaða fjárlagagerð
Samstíga 2
Jafnréttisstofa, fjármálaráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið stóðu buðu til ráðstefnu um kynjaða fjárlagagerð á Hotel Nordica föstudaginn 13. nóvember 2009. 
Ráðstefnan var sérstaklega ætluð forstöðumönnum ríkisstofnana, skrifstofu- og ráðuneytisstjórum, fulltrúum í fjárlaganefnd, fjármálastjórum, þingmönnum og ráðherrum, embættismönnum í norrænu samstarfi og sérfræðingum um jafnréttismál.

Kynjuð fjárlagagerð er flestum framandi hugtak enn sem komið er og var leitast við að skýra út hugmyndafræðina og aðferðirnar sem hún byggir á. Meðal annars var skoðað hvaða áhrif ákvarðanir um ríkisútgjöld hafa á kynin.

Erindi héldu:

Catharina Schmitz, aðstoðarframkvæmdastjóri Institute of Public Management, Gender Responsive Budgeting 

Païvi Valkama, skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu finnska fjármálaráðuneytisins, Gender Budgeting in Finland 

Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri Stjórnhátta, Kynjuð fjárlagagerð á umbrotatímum

Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, Jöfnum leikinn - kynjasamþætting til árangurs

Maríanna Traustadóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum hjá ASÍ, Kynjuð hagstjórn - réttlátt þjóðfélag?

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna í boðsbréfi á ráðstefnuna
og dagskrá.

Ávarp flutti Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og ráðstefnustjóri var Kristín Ástgerisdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.



Þetta verkefni er styrkt af PROGRESS – áætlun Evrópusambandsins á sviði vinnu og félagsmála (2007-2012). Upplýsingarnar á þessari vefsíðu (eða í annarri útgáfu) endurspegla ekki endilega afstöðu eða skoðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.